Ísafold Capital Partners er sjálfstætt starfandi sjóðastýringarfyrirtæki sem stofnað var árið 2009. Félagið sérhæfir sig í rekstri sjóða með áherslu á fjárfestingar í lánum og lánatengdum afurðum.
Ísafold Capital Partners hefur starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020. Í dag stýrir félagið þremur sérhæfðum sjóðum, MF2 hs., MF3 hs. og MF4 hs.
Framkvæmdastjóri félagsins er Gísli Valur Guðjónsson. Í stjórn félagsins sitja Þórólfur Sigurðsson, Katrín Helga Hallgrímsdóttir og Lúðvík Örn Steinarsson.